Hyckes LIFE 30 kælibos með pressu
Ferðakælir með kælipressu. Það nýjasta á kæliboxa markaðnum og á viðráðanlegu verði. Hægt er að kæla eða frysta mat og drykk, óháð umhverfishita. Kæliboxið er sparneytið og er hægt að hafa það tengt mun lengur við rafkerfi bílsins, þegar hann er ekki í gangi, heldur en kælibox með kæliviftu án þess að eyða öllu rafmagninu útaf rafgeymi bílsins.
Kæliboxið er búið öflugri kælipressu. Kæliboxið er búið ákveðnum rafeindabúnaði sem ákvarðar sjálfkrafa réttan hraða fyrir hámarks kælingu niður í -20°C. Rafeindabúnaðurinn er vistvænn og stýrir þannig hraða kælipressunar eftir þörfum og aðstæðum og nær þannig allt að 35% orkunýtni. Þessi eiginleiki nýtist hvað best á nóttunni til að draga úr óæskilegum hávaða og njóta ákjósanlegs nætursvefnis!
Auðvelt í notkun
Kælinum er stjórnað á einfaldann hátt í gegnum stafræna stjórnborðið. Skjárinn er með hárri upplausn og sýnir núverandi hitastig, rafhlöðugetu o.fl.. Hægt er að hlaða farsíma í gegnum innbyggða USB hleðslutengið. Sæktu Hyckes appið í síma eða spjaldtölvu til að stjórna kæliboxinu úr fjarska. Forritið veitir þér aðgang með símanum að öllum aðgerðum kæliboxins í gegnum Bluetooth. Lokið er opnanlegt frá báðum hliðum og þ.a.l. mjög gott aðgengi að kælivörum.
Heima og á ferðinni
Þetta kælibox hefur alltaf sömu kæligetu, óháð umhverfishita. Notaðu kæliboxið í bílnum á 12/24V, eða tengdu hann við innstungu með meðfylgjandi 230V millistykki.
Vistvænt kælikerfi
Kæliboxið er búið náttúrulegu kælikerfi sem er laus við skaðleg efni sem eyða ósonlaginu eða stuðla að gróðurhúsaáhrifum. Lægri þrýstingur dregur úr hávaða í kælikerfinu og sparar orkunotkun ásamt snjallstýrðri kælipressunni. Gott fyrir umhverfið og veskið.
Helsta virkni
Kæling og frysting niður í -20°C
Hentar fyrir 1,5L flöskur
Hægt að tengja við öll rafmagnstengi
Appstýring fyrir farsíma
Stafrænn skjár með USB hleðsluaðgerð
Rafhlöðuvarnarkerfi ökutækja
Tæknilýsing
Rými: 28 lítrar
Kæligerð: kælipressa
Þyngd: 12 kg
Hljóðstig: <45dB
Volt: 12/24V/230V
Orkunotkun við 12V: 0,9 Ah
Wött: 60W
Orkunotkun við 230V: 0,19kWh
Kælisvið: -20 til 20°C
Kælikerfi: R600a
Mál H x L x B: 37,2 x 60,8 x 36,5 cm
